GLEÐILEGT ÁR

Jæja betra er seint en aldrei emoticon   hér er ég komin, örlítið blogg sett hér inn emoticon
Ég hef verið afar andlaus í bloggi og ekki fundið mikla þörf hjá mér til að setjast niður til að tjá migemoticon

Ekki veit ég hvort þessi tilraun verður upphaf að bloggeljusemi hjá mér, það kemur bara í ljós.
Ég er búin að hafa það nokkuð sæmilegt, fékk gott frí um jólin og góða gesti, Elva og fjölsk mætti á klakann og voru hér hjá mér á aðfangadagskvöld og að venju komu svo allir til mín á aðfangadagskvöld og var nú heldur fjölmennara en venjulega þar sem Elva Hjálmar og Raggi voru hérna og svo kom Óli með sýnar skottur og Esta og fjölsk að venju, svo vorum við hjá Estu og Skúla á gamlárskvöld öllemoticon emoticon . Danirnir mínir flugu svo út á nýjársdagsmorgun, en Jakob og Elísa fara heim á sunnudaginn.

Raggi og Amy eru þessa stundina sennilega nývöknuð emoticon á einhverju glæsihóteli í Las Vegas (skrifað kl 11,00 f.h. að þeirra tíma) en þau fóru þangað á fimmtudag eða föstudag og hafa það bara flott, koma fara sennilega heim aftur á morgun og hann kemur svo heim aftur á sunnudaginn töffarinn emoticon ekki laust við að mamma gamla sé farin að hlakka til að sjá drenginn.
Svo er það skólinn hjá honum og vonandi verður það jafn flott og fyrir jólin þar sem hann stóð sig frábærlega á öllum prófum.

Sylvía er svo að fara í skólann líka og langa ætlar að passa Dagnýju Rósemoticon þegar það á við, en svo verða aðrir að koma inn líka, enginn vandi með það, hún er svo meðfærileg þetta gull.

Jæja þetta var nú svona smá til að sýna að ég er enn á lífi og kann að blogga ennþá, annars er facebook afar þægilegur kostur, þar þarf maður ekkert að skrifa nein ósköp bara kíkja á vini, spjalla og þ.h.

Gleðilegt ár kæru bloggvinir mínir og þakka ykkur innilega samfylgdina á liðnu ári emoticon

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

velkomin til leiks  mín kæra.Gott ad heyra frá tér.Vonandi finnur tú tig svo med okkur á blogginu um tíma ad minnstakosti:) :)

kvedja frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 5.1.2009 kl. 20:36

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Gaman að sjá þig aftur.

Helga Magnúsdóttir, 5.1.2009 kl. 21:26

3 Smámynd: Aprílrós

Velkomin aftur í bloggheim. Sjálf er ég ekkert duglega, frekar emty er ég búin að vera til þess að gera.

Aprílrós, 5.1.2009 kl. 21:50

4 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Gleðilegt ár til þín og þinna.

Gott að þú skulir vera komin aftur vina.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 5.1.2009 kl. 21:53

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gott aðþú ert vöknuð tillífsins Gunna mín. Ég hef bloggar helling núna í öllu mótmælaæðinu. Ég er heldur að reyna að koma jákvæðni á framfæri, en hún er bara ekki vinsæl núna þessa dagana. Allt gott að frétta héðan úr hinu grösuga Húnaþingi. Við tökum hlutunum með ró og spenniskífu. Erum ekkert að fara í byltingu svo ég viti, enda "kreppan" búin að vera hér árum saman.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.1.2009 kl. 22:45

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Gleðilegt ár mín kæra

Jóna Á. Gísladóttir, 6.1.2009 kl. 16:44

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gleðileg ár elskan gott að þú ert komin aftur.

Kristín Katla Árnadóttir, 6.1.2009 kl. 20:33

8 identicon

Gleðilegt ár Guðrún mín. Það var gaman að lesa bloggið þitt elsku vinur. Hafðu það rosalega gott á nýja árinu elsku vinur og við verðum í góðum tengslum á því nýja í gegnum Faceið eða bloggið.


Með bestu kveðju.

Valgeir.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 22:39

9 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Gott að þú ert komin aftur og Gleðilegt ár Guðrún min

Kristín Gunnarsdóttir, 7.1.2009 kl. 09:21

10 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Gleðilegt ár kæra vinkona, vona að þér og þínum gangi sem allra best á nýju ári.

  Kærleikssljós og gleði.

Sigríður Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 09:00

11 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Anna Ragna Alexandersdóttir, 8.1.2009 kl. 10:18

12 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

  Gangi þér vel Gunna mín ,,,,,,,,,,, alltaf !!!!!!!!!!!!!! Gleðilegt kreppu helv   ..... ár

Erna Friðriksdóttir, 8.1.2009 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband