smá tilraun til bloggs ;)

Ótrúlega er ég búin að vera blogglöt undanfarið, það er ekki nokkurt vit í þessum vesaldómi  ekki það að ástandið í þjóðfélaginu er ekki á þá lundemoticon að koma manni til að brosa, því miður, vildi að svo væri.emoticon

 

3jadaga vinnutörn (ef vinnutörn skyldi kalla hehehehe)framundan og svo 2 í fríi og þá daga (frídagana) ætla ég að nota í sláturgerð, rifja upp gamla hæfileika emoticon (húsmóðurhæfileika) og taka svona ca 6 slátur, hvað svo sem það þýðir í keppatali hehehehe, jú ég veit að að það er innvolsið úr sex lömbum, en ég gat hér í denn bara tekið svona marga lítra af blóði og svona mörg kg af lifur og mör, enda kerla oftast meira og minna viðriðin sláturhúsið á haustinemoticon .

 

Ég gleymdi alveg að fara í Krónuna/Bónus til að hamstra, veit ekki hvernig fer fyrir mér í komandi neyðarástandi og matarskortiemoticon (a.m.k hjá Bónus), fer nú oftast í Krónuna og það kannski bjargar mér  þeir eru kotrosknir ennþá.

 

Hef verið að leika mér aðeins á Facebook bara gaman að því, fann þar mynd af elsku Hvammstanga og púff, æ mig langaði HEIMemoticon . Besti staðurinn emoticon

 

Ekkert áhugavert sem hefur drifið á daga mína, lít inn öðru hvoru í risinu en gleymi alltaf myndavélinni.


 

Hætt í bili, megi vinnuvikan verða ykkur góð, á von á að mín verði þaðemoticon

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Gott ad heyra frá tér ad nýju....Nenni sjálf ekki alveg núna ad taka tátt í krepputali svo ég er utangátta í dag...........

gangi tér vel í sláturgerd nammi tad er bara svo gott.

Knús

Gudrún Hauksdótttir, 6.10.2008 kl. 14:19

2 Smámynd: Sara Diljá Hjálmarsdóttir

loksins loksins

knús til þín elsku amma mín, þú ert best í heimi!

Sara Diljá Hjálmarsdóttir, 6.10.2008 kl. 21:56

3 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Hafðu það gott Gunna mín

 kv.

Lói

Eyjólfur Sturlaugsson, 6.10.2008 kl. 22:30

4 identicon

Ég er hætt að kaupa í Bónus.Nettó og Krónan eru mínar búðir

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband