Gleðilega hátíð kæru vinir

Þá þurfum við ekki lengur að kvíða hvítasunnuhretinu, það kemur tæplega efir hvítasunnuna Smile eða hvað haldið þið?

Þriggja daga helgarfríinu mínu er að ljúka, eða það endaði í eins dags fríi LoL kellan að ná sér í auka aur fyrir dk hehehehe skil ekkert í því að hækka svona dönsku krónunaWoundering og það rétt um það leiti sem ég ætlaði að kaupa mér rnokkrarW00tLoL, jæja gott mál og kannski það stoppi mann ekki mikið þegar maður er mættur á svæðið, það verði bara látið flakka.

Hér hefur flensan verið við stýrið hjá örverpinu, hann hefur bókstaflega legið í rúminu í 3 daga og er rétt að staulast fram úr núna hóstandi og snippandi. Í gær var hann ekki viðræðuhæfur, er viss um að hann var með 39-40° hita ræfilstuskan.

Hitti Lólý vinkonu mína, hef ekki séð hana í langan tíma og ef ég næ sambandi við þá þriðju okkar ætlum við að vera skemmtilegar saman á næstunni, úff hvað ég hlakka til, við erum ansi góðar saman enda búnar að vera vinkonur frá því 1975!  Svo er á dagskránni að hitta bænahringsgellurnar mínar frá Hvammstanga í sumar, ja eða bara kannski sem fyrst, það er líka ótrúlega góður hópur, samstilltar stelpur "í andanum"WizardWhistling

Guðrún mín Ingibergs, velkomin í minn bloggvinahóp, vona að þú staldrið við lengi hérna með okkur skemmtilega fólkinuW00t

Annars

 

 

hætt

Guð blessi ykkur öll og gangið í ljósinu. 

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 

Sjitt, bráðum eru ekki nema tvö ár í sextugtWizard þann 14 þ.m. get ég farið að telja niður í dögum hehehehehehe

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Gleðilega hvítasunnuhátíð. Vonandi að þið vinkonurnar fílið ykkur alveg í botn.

Helga Magnúsdóttir, 11.5.2008 kl. 18:06

2 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 12.5.2008 kl. 06:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband