9.4.2008 | 22:42
frh. af vöfflujárni ;)
Hef ákveðið að halda vöfflujárninu, það er búið að haga sér óaðfinnanlega, það bakar fínt þó ég verði að hræra deigið takk Vala
Fátt eitt í fréttum, var að fastsetja sumafríið, þ.e. hvaða vikur ég tek, ætla að vera frá 2 júní og mæta svo aftur 8 júlí og þá þarf ég að vinna 11 mánuði a.m.k. fram að næsta sumarfríi og þá er næst að panta ferðina til Danmerkur
Hugsaði til Gurríar og Tomma í morgun þegar ég heyrði af strætóslysinu í morgun, veit reyndar ekki hver var að keyra en sá þegar ég aðeins leit inn á bloggið sá að Gurrí hafði verið heim, á eftir að LESA bloggið hennar í dag.
Ég hef verið frekar slöpp við að kommenta hjá ykkur kæru bloggvinir, hef bara takmarkaðan tíma til að sitja, lesa og kommenta svo það verður bara svona öðruhvoru sem ég kem til með að setja eitthvað inn, les ykkur samt reglulega og kommenta þegar ég gef mér tíma.
Jæja, það fer að styttast í að Amy komi "heim" en hún kemur á sunnudagsmorgun og feðgarnir sækja hana en ég er að vinna.
Knús inn í nóttina og varðveiti ykkur allt sem gott er
Ykkar Gunna
Athugasemdir
Daginn mín kæra
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 08:58
smá innlitskvitt með meiru :)
Erna Friðriksdóttir, 10.4.2008 kl. 15:27
Takk fyrir mig Guðrún mín og knús
Kristín Katla Árnadóttir, 10.4.2008 kl. 16:11
innlitskvitt.
knús á þig
Helga skjol, 10.4.2008 kl. 18:00
Langaði bara að kasta á þig kveðju...segi eins og þú, það er brjálað að gera
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 11.4.2008 kl. 09:21
Hafðu ljúfa helgi Elskuleg
Brynja skordal, 11.4.2008 kl. 10:45
Góða helgi og þú bakar væntanlega vöfflur í djöfulmóð.
Helga Magnúsdóttir, 11.4.2008 kl. 13:55
HÆ hæ
ég var hérna... og nú langar mig rosalega í vöfflur, helst ef þær gætu bakað sig sjálfar...
knús til þín
Halla bjalla
Halla bjalla (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 16:45
Mmmmmm...vöfflur! O ef ég mætti nú snöfla í mig eins og einni vöfflu með rjóma...mmmm dýrð.
Láttu þér líða vel yfir helgina
Sigríður Sigurðardóttir, 11.4.2008 kl. 23:12
Sem betur fer var ég ekki þarna. Sigþóra var í algjöru sjokki eftir þetta, elsku dúllan, fékk að fara heim úr vinnunni á hádegi og alveg búin á því.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 14.4.2008 kl. 20:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.