24.1.2008 | 00:55
bara gott að frétta...
...af henni dóttlu minni. Ætla að hringja í hana á morgun og spjalla betur við hana. Talaði örstutt við tengdasoninn og fannst hann vera ánægður með framvindu mála, Elva bað mig svo um að hringja í sig á morgun svo ég var ekkert að yfirheyra hann meira.
Kæru vinir mínir, bestu þakkir fyrir það sem þið hafið gert, það er ekkert verra að þið sendið ljós svona eitthvað enn, það gerir öllum gott, þiggjanda og sendanda.
Knús á ykkur og ég bið góðan Guð af vaka yfir ykkur
Stressaða mamman
Hanna Sigga mín, gaman að sjá komment frá þér, já Lillukórsferðirnar
Athugasemdir
Gott að lesa að allt gengur vel. Knús í bæ...
SigrúnSveitó, 24.1.2008 kl. 10:50
Æji Gunna mín, börnin okkar verða alltaf börnin okkar , það er bara þannig Vona að allt gangi vel. og knús til þín
Erna Friðriksdóttir, 24.1.2008 kl. 15:53
Gott allt sé að ganga vel Guðrún mín. til þess erum við bloggvinir til að hjálpa hver öðrum.
Kristín Katla Árnadóttir, 24.1.2008 kl. 16:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.